Sjúkraskósmíðaverkstæði á Akureyri er að leita að skósmið
Um starfið
Skósmiður eða manneskja vön skóviðgerðum
Skósmiður eða aðstoðarmanneskja á sjúkraskósmíðaverkstæði óskast. Starfið felst í framleiðslu á inniskóm, skóviðgerðum, vinnu á slípivélum, afgreiðslu og önnur tilfallandi verkefni sem koma til.Hæfniskröfur
Hæfniskröfur: Vandvirkni og útsjónarsemi. Geta unnið sjálfstætt, jákvæður og ábyrgðafullur. Kostur að hafa unnið með fræsi-og slípivélar. Ekki er krafist að viðkomandi hafi menntun innan fagsins og möguleiki er á að mennta sig hjá fyritækinu fyrir rétta manneskju.
Það sem starfið býður upp á
Það sem er í boði er vinna á litlum og þægilegum vinnustað þar sem hlutirnir ganga vel fyrir sig. Unnið er á mánudögum til fimmtudaga frá kl.9:00-17:00 og á föstudögum frá 9:00-16:00 og hér er gott andrúmsloft.Þetta er skapandi vinna og mjög skemmtileg. Hér er ekkert stress og læti og allt unnið í vandvirkni og rólegheitum, hlutirnir þurfa að vera rétt gerðir.
Helstu upplýsingar
- Staðsetning
- Akureyri
- Starfshlutfall
- Fullt starf
- Tungumál auglýsingar
- Íslenska · Enska
Skósmiðurinn og álfarnir ehf.
Hér á okkar Sjúkraskósmíða verkstæði framleiðum við KB heilsuinniskó sem hafa verið framleiddir hér í 35 ár. Við erum með göngugreiningar og sérsmíðuð innlegg, við handsmíðum skó fyrir sjúka og veika fætur. Skóviðgerðir eru einnig gerðar…
Skoða fyrirtæki →