Vinn.is
Skósmiðurinn og álfarnir ehf.

Skósmiður/manneskja með reynslu af skóviðgerðum

AkureyriFullt starf
Auglýsing birt17. október 2026
Umsóknarfrestur31. desember 2026

Sjúkraskósmíðaverkstæði á Akureyri er að leita að skósmið

Um starfið

Skósmiður eða manneskja vön skóviðgerðum

Skósmiður eða aðstoðarmanneskja á sjúkraskósmíðaverkstæði óskast.  Starfið felst í framleiðslu á inniskóm, skóviðgerðum, vinnu á slípivélum, afgreiðslu og önnur tilfallandi verkefni sem koma til.

Hæfniskröfur

Hæfniskröfur: Vandvirkni og útsjónarsemi.  Geta unnið sjálfstætt, jákvæður og ábyrgðafullur.  Kostur að hafa unnið með fræsi-og slípivélar.  Ekki er krafist að viðkomandi hafi menntun innan fagsins og möguleiki er á að mennta sig hjá fyritækinu fyrir rétta manneskju.

Það sem starfið býður upp á

Það sem er í boði er vinna á litlum og þægilegum vinnustað þar sem hlutirnir ganga vel fyrir sig.  Unnið er á mánudögum til fimmtudaga frá kl.9:00-17:00 og á föstudögum frá 9:00-16:00 og hér er gott andrúmsloft.Þetta er skapandi vinna og mjög skemmtileg.  Hér er ekkert stress og læti og allt unnið í vandvirkni og rólegheitum, hlutirnir þurfa að vera rétt gerðir.

Helstu upplýsingar

Staðsetning
Akureyri
Starfshlutfall
Fullt starf
Tungumál auglýsingar
Íslenska · Enska
Um fyrirtækið

Skósmiðurinn og álfarnir ehf.

Hér á okkar Sjúkraskósmíða verkstæði framleiðum við KB heilsuinniskó sem hafa verið framleiddir hér í 35 ár. Við erum með göngugreiningar og sérsmíðuð innlegg, við handsmíðum skó fyrir sjúka og veika fætur. Skóviðgerðir eru einnig gerðar…

Skoða fyrirtæki →