Vinn.is

Prentþjónusta

Gátlisti fyrir almenn innkaup á prentþjónustu
  • Leitið leiða til að lágmarka umfang þess sem á að prenta. Oft er hægt að koma upplýsingum til skila á árangursríkan og umhverfisvænni hátt með öðrum leiðum, t.d. á tölvutæku formi.  Einnig er hægt að minnka umfang efnis sem á að prenta með hnitmiðuðum texta og skynsamlegri uppsetningu. 
  • Veljið prentþjónustu sem er umhverfismerkt (s.s. með Svansmerkinu) eða sem vinnur samkvæmt vottuðu umhverfisstjórnunarkerfi (s.s. ISO 14001 eða EMAS). Viðurkennd umhverfismerking er trygging fyrir því að viðkomandi prentþjónusta er meðal þeirra sem uppfylla ströngustu umhverfiskröfur og að umhverfisáhrif þjónustunnar hafi markvisst verið lágmörkuð á öllum stigum lífsferils hennar, án þess að það sé á kostnað virkni eða gæða vörunnar. Sé unnið samkvæmt vottuðu umhverfisstjórnunarkerfi er það til marks um að markvisst sé unnið að því að lágmarka umhverfisáhrif starfseminnar. 
  • Biðjið um að notaður sé pappír sem er umhverfismerktur t.d. með Svaninum, Blóminu eða Bláa Englinum. 
  • Takið mið af því við hönnun á prentefni að notað verði pappírsform og stærð sem lágmarkar pappírsafskurð. Stór hluti pappírssóunar prentþjónustu stafar af því að prentefni er ekki hannað þannig að pappír nýtist sem best.  Með réttri hönnun er hægt að minnka pappírsnotkun verulega.
  • Biðjið um að notaður sé pappír sem hæfir notkun og er eins þunnur og mögulegt er. Þannig er stuðlað að því að ekki sé notaður þykkari eða meira meðhöndlaður pappír en þörf er á. Þó getur borgað sig að nota þykkari pappír af meiri gæðum til að hámarka endingu þess sem verið er að prenta, þegar viðkomandi prentefni þarf að endast lengi.
Þú ert hér: Forsíða Kaupendur Smærri innkaup Prentþjónusta

Um verkefnið

Verkefnið Vistvæn innkaup (VINN) varð til árið 2003 sem samstarfsvettvangur opinberra aðila sem höfðu áhuga á að innleiða og vinna að vistvænum innkaupum. Endurskoðuð stefna 2013 var útvíkkuð og tekur nú einnig til græns ríkisreksturs. Meginþættir verkefnisins eru að þróa vistvæn innkaup og grænan ríkisrekstur, upplýsa og aðstoða.

 

Aðstandendur verkefnisins

Fjármálaráðuneytið
Umhverfisráðuneytið
Ríkiskaup
Umhverfisstofnun
Samband íslenskra sveitarfélaga
Hafnarfjarðarbær
Reykjavíkurborg
Landspítali

Hafðu samband

Hafir þú spurningar, athugasemdir eða fréttir er best að hafa samband í gegnum This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. .

Sjá einnig á Facebook og Twitter.

 

Flestar myndirnar á vefnum tók Hugi Ólafsson en nokkrar eru fengnar úr myndabanka norden.org.