Vinn.is

Hvað eru vistvæn innkaup?

Vistvæn innkaup er að velja þá vöru eða þjónustu sem er síður skaðleg umhverfinu eða heilsu manna og ber sama eða lægri líftímakostnað samanborið við aðrar vörur og þjónustu sem uppfylla sömu þörf.

Fréttir

Ný stefna um vistvæn innkaup og grænan ríkisrekstur undirrituð

Katrín Júlíusdóttir, fjármála- og efnahagsráðherra og Svandís Svavarsdóttir, umhverfis- og auðlindaráðherra undirrituðu í dag stefnu til fjögurra ára um vistvæn innkaup og grænan ríkisrekstur.

Í stefnunni er fjallað um hvernig samþætta má umhverfissjónarmið góðum innkaupaháttum hjá ríkinu og hvernig opinberir aðilar geta gert rekstur sinn grænni. 

Stefna um vistvæn innkaup og grænan ríkisrekstur tekur við af fyrri stefnu um vistvæn innkaup frá árinu 2009 og eldri umhverfisstefnu í ríkisrekstri frá árinu 1998.

Umfang innkaupa ríkisins er um 150 milljarðar króna á ári.  Með kaupmætti sínum og eftirspurn getur ríkið haft gríðarleg áhrif á þróun á markaði; á vöru- og þjónustuframboð og verið drifkraftur nýsköpunar.  Í tillögum Alþingis um eflingu græna hagkerfisins er lögð áhersla á að ríkið verði fyrirmynd og skapi aðstæður fyrir grænt hagkerfi, m.a. í gegnum vistvæn innkaup og markvisst umhverfisstarf.

Áhersla ríkis og sveitarfélaga á vistvæn innkaup hefur þegar haft veruleg áhrif á markaðinn.  Dæmi um það er fjölgun Svansvottaðra fyrirtækja úr 4 í 25 frá samþykkt síðustu stefnu, sem telja má beina afleiðingu af umhverfiskröfum í útboðum opinberra aðila.

Þá gefur könnun á stöðu vistvænna innkaupa og vistvæns ríkisreksturs sem gerð var hjá ríkisstofnunum í febrúar 2013 til kynna að um þriðjungur stofnana hugi að vistvænni rekstri. 

Stefna um vistvæn innkaup fyrir árin 2013-2016 er afrakstur endurskoðunar stýrihóps um vistvæn innkaup á fyrri stefnu og nýrri aðgerðaráætlun.

Í stefnunni er lögð áhersla á fræðslu og innleiðingu í góðu samstarfi við hagsmunaaðila, til að tryggja sem bestan árangur við að draga úr umhverfisáhrifum um leið og stuðlað er að aukinni samkeppnishæfni íslenskra fyrirtækja sem bjóða vistvænni valkosti. Þá er gert ráð fyrir að horft verði m.a. til frammistöðu stofnana í vistvænum innkaupum og grænum rekstri við mat á fyrirmyndarstofnun ársins.

Meira hér.

 

Þú ert hér: Forsíða Nýtt frá stofnunum Ný stefna um vistvæn innkaup og grænan ríkisrekstur undirrituð

Um verkefnið

Verkefnið Vistvæn innkaup (VINN) varð til árið 2003 sem samstarfsvettvangur opinberra aðila sem höfðu áhuga á að innleiða og vinna að vistvænum innkaupum. Endurskoðuð stefna 2013 var útvíkkuð og tekur nú einnig til græns ríkisreksturs. Meginþættir verkefnisins eru að þróa vistvæn innkaup og grænan ríkisrekstur, upplýsa og aðstoða.

 

Aðstandendur verkefnisins

Fjármálaráðuneytið
Umhverfisráðuneytið
Ríkiskaup
Umhverfisstofnun
Samband íslenskra sveitarfélaga
Hafnarfjarðarbær
Reykjavíkurborg
Landspítali

Hafðu samband

Hafir þú spurningar, athugasemdir eða fréttir er best að hafa samband í gegnum This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. .

Sjá einnig á Facebook og Twitter.

 

Flestar myndirnar á vefnum tók Hugi Ólafsson en nokkrar eru fengnar úr myndabanka norden.org.