Vinn.is

Hvað eru vistvæn innkaup?

Vistvæn innkaup er að velja þá vöru eða þjónustu sem er síður skaðleg umhverfinu eða heilsu manna og ber sama eða lægri líftímakostnað samanborið við aðrar vörur og þjónustu sem uppfylla sömu þörf.

Fréttir

Umhverfisskilyrði fyrir garðyrkjuvörur og - þjónustu

Nú eru aðgengileg hér á vefnum sextándu umhverfisskilyrðin, fyrir garðyrkjuvörur og - þjónustu. Á einfaldan hátt má setja kröfur í útboð fyrir fjölmarga vöruflokka; áklæði, ljósaperur, húsgögn, bíla, akstursþjónustu, pappír, tölvur, ræstivörur og svo mætti lengi telja. Nýta á hvert tækifæri til að hafa áhrif á markaðinn með því að nota skilyrðin, eða svo vitnað sé í orð borgarstjóra Malmö á nýliðinni alþjóðlegri ráðstefnu um vistvæn innkaup; "Áskorun okkar er að tryggja að hver evra sem við eyðum hámarki ávinning samfélagsins, dragi úr neikvæðum umhverfisáhrifum og stuðli að sjálfbærum hagvexti."

Er viðurinn frá löglegu skógarhöggi?

Hér er að finna áhugavert myndband um stöðu nytjaskógræktar, innkaup á viðarvöru, hlutverk umhverfismerkja og vandamál ólöglegrar viðarframleiðslu. Myndbandið útskýrir hvers vegna þarf að setja kröfur í útboðum/innkaupum, hlutverk umhverfismerkja og að mikilvægt sé að vera vakandi fyrir uppruna viðarins.

Umhverfiskröfur í útboð - úrvalið batnar

Stöðugt bætist í hóp umhverfisskilyrða fyrir útboð. Í ágúst hafa verið uppfærð þrjú skilyrði; ræstivörur og -þjónusta, upplýsingatæknibúnaður og vefnaðarvörur. Umhverfiskilyrðin eru flest þróuð af Evrópusambandinu og auðvelda opinberum aðilum vistvæn innkaup með því að fella umhverfisskilyrðin inn í eigin útboðsgögn.

Samgöngur og lýsing - ný skilyrði fyrir útboð

Tvö ný skilyrði hafa bæst í fríðan hóp umhverfisskilyrða fyrir útboð. Skilyrði fyrir samgöngur ná til bifreiða og akstursþjónustu (sorphirðu og almenningsvagna). Skilyrði fyrir lýsingu ná til ljósapera og ljósahönnunar og -stýringar. Skilyrðin má nálgast hér.

Ríó+20: opinber innkaup skipta máli í grænu hagkerfi

Geta ríkisstjórnir ýtt undir græna hagkerfið í gegn um opinber innkaup? Já sögðu norrænir ráðherrar á nýliðinni ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna Ríó+20. Haldinn var  sérstakur viðburður á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar þar sem þessari spurningu var svarað ásamt fleirum, sjá nánar í frétt hér.

Þú ert hér: Forsíða Nýtt frá stofnunum

Um verkefnið

Verkefnið Vistvæn innkaup (VINN) varð til árið 2003 sem samstarfsvettvangur opinberra aðila sem höfðu áhuga á að innleiða og vinna að vistvænum innkaupum. Endurskoðuð stefna 2013 var útvíkkuð og tekur nú einnig til græns ríkisreksturs. Meginþættir verkefnisins eru að þróa vistvæn innkaup og grænan ríkisrekstur, upplýsa og aðstoða.

 

Aðstandendur verkefnisins

Fjármálaráðuneytið
Umhverfisráðuneytið
Ríkiskaup
Umhverfisstofnun
Samband íslenskra sveitarfélaga
Hafnarfjarðarbær
Reykjavíkurborg
Landspítali

Hafðu samband

Hafir þú spurningar, athugasemdir eða fréttir er best að hafa samband í gegnum This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. .

Sjá einnig á Facebook og Twitter.

 

Flestar myndirnar á vefnum tók Hugi Ólafsson en nokkrar eru fengnar úr myndabanka norden.org.