Ljósaperur
Gátlisti fyrir almenn innkaup á ljósaperum
- Veljið sparperur. Sparperur nota um fjórðungi af því rafmagni sem venjulegar glóperur þurfa og þær duga 8 sinnum lengur. Athugið að sparperur og flúorperur innihalda spilliefni m.a. kvikasilfur og því má alls ekki setja þær í almennan úrgang heldur þarf að skila þeim til endurvinnslu.
- Veljið langan endingartíma. Sparperur, flúorperur eða venjulegar glóperur hafa mislangan endingartíma. Veljið perur sem endast í 10.000 ljóstíma eða lengur.