Fréttir
Metnaður í umhverfismálum ÁTVR
Þann 17. janúar 2011 var Sigrúnu Ósk hjá ÁTVR heimsótt. Stofnunin sýnir mikinn metnað þegar kemur að því að draga úr umhverfisáhrifum starfsemi sinnar; fylgir umhverfisstefnu sem tekur á innkaupum með nokkrum umhverfisþáttum og birta niðurstöður ársskýrslu.
Einungis er keypt Svansmerkt prentþjónusta og Svansmerktar ræstingar. Aðgangsstýring er á þó nokkrum prenturum stofnunarinnar. Vilji er hjá ÁTVR til að gera enn betur, til dæmis er verið að skoða það að bjóða margnota poka í verslunum.