Fréttir
Vistvænar skrifstofuvörur í rammasamningum
Nú skal allur pappír vera umhverfismerktur, einnig skulu samningsaðilar bjóða að lágmarki umhverfismerktar möppur og penna, samkvæmt nýjum rammasamningi um skrifstofuvörur og ljósritunarpappír. En athugið að innkaupafólk þarf að vera vakandi og óska sérstaklega eftir umhverfismerktum vörum. Seljendur bjóða einnig upp á minnismiða, vinnubækur, blokkir og umslög.
Á vef Ríkiskaupa má sjá nánar um rammasamninginn.