Fréttir
Hvaða viðmið/merki á að nota í innkaupum?
Merkja- og viðmiðafrumskógurinn getur verið flókinn og erfitt að vita hverju skuli fylgja til að velja vistvænt, siðgæðisvottað eða annað í þeim dúr. Nú býðst aðgengilegt verkfæri Standard Map sem auðveldar þessa vinnu fyrir kaupendur en einnig framleiðendur og útflytjendur.
Yfir 130 merki og viðmið er að finna í gagnagrunninum fyrir fjölmarga vöruflokka. Verkfærið auðveldar samanburð á milli merkja og viðmiða og er markmiðið að stuðla að grænna hagkerfi.