Vinn.is

Hvað eru vistvæn innkaup?

Vistvæn innkaup er að velja þá vöru eða þjónustu sem er síður skaðleg umhverfinu eða heilsu manna og ber sama eða lægri líftímakostnað samanborið við aðrar vörur og þjónustu sem uppfylla sömu þörf.

Fréttir

Svansmerktar ræstingar á Landspítala

Þann 5. maí 2011 var Landspítalinn heimsóttur og rætt var við Halldór, Kristínu, Jóhann og Jóhönnu um vistvæn innkaup spítalans. Ýmislegt er verið að gera hjá spítalanum, svo sem að setja kröfu um Svansmerktar ræstingar.

Meira...

Landgræðslan dregur úr vatns- og rafmagnsnotkun

Þann 9. júní 2011 voru Sveinn og Guðmundur hjá Landgræðslunni heimsóttir. Landgræðslan hefur ýmislegt gert til að draga úr umhverfisáhrifum sínum, til dæmis var sérstakt átak um að draga úr notkun á heitu vatni og rafmagni í starfsemi stofnunarinnar. Árangurinn lét ekki á sér standa og var í raun svo mikill að þeir fengu upphringingu frá Orkuveitunni sem vildi vita af hverju orkunotkun hefði snarlækkað undanfarið.

Þú ert hér: Forsíða Nýtt frá stofnunum

Um verkefnið

Verkefnið Vistvæn innkaup (VINN) varð til árið 2003 sem samstarfsvettvangur opinberra aðila sem höfðu áhuga á að innleiða og vinna að vistvænum innkaupum. Endurskoðuð stefna 2013 var útvíkkuð og tekur nú einnig til græns ríkisreksturs. Meginþættir verkefnisins eru að þróa vistvæn innkaup og grænan ríkisrekstur, upplýsa og aðstoða.

 

Aðstandendur verkefnisins

Fjármálaráðuneytið
Umhverfisráðuneytið
Ríkiskaup
Umhverfisstofnun
Samband íslenskra sveitarfélaga
Hafnarfjarðarbær
Reykjavíkurborg
Landspítali

Hafðu samband

Hafir þú spurningar, athugasemdir eða fréttir er best að hafa samband í gegnum This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. .

Sjá einnig á Facebook og Twitter.

 

Flestar myndirnar á vefnum tók Hugi Ólafsson en nokkrar eru fengnar úr myndabanka norden.org.