Fréttir
Umhverfisskilyrði fyrir garðyrkjuvörur og - þjónustu
Nú eru aðgengileg hér á vefnum sextándu umhverfisskilyrðin, fyrir garðyrkjuvörur og - þjónustu. Á einfaldan hátt má setja kröfur í útboð fyrir fjölmarga vöruflokka; áklæði, ljósaperur, húsgögn, bíla, akstursþjónustu, pappír, tölvur, ræstivörur og svo mætti lengi telja. Nýta á hvert tækifæri til að hafa áhrif á markaðinn með því að nota skilyrðin, eða svo vitnað sé í orð borgarstjóra Malmö á nýliðinni alþjóðlegri ráðstefnu um vistvæn innkaup; "Áskorun okkar er að tryggja að hver evra sem við eyðum hámarki ávinning samfélagsins, dragi úr neikvæðum umhverfisáhrifum og stuðli að sjálfbærum hagvexti."
Er viðurinn frá löglegu skógarhöggi?
Hér er að finna áhugavert myndband um stöðu nytjaskógræktar, innkaup á viðarvöru, hlutverk umhverfismerkja og vandamál ólöglegrar viðarframleiðslu. Myndbandið útskýrir hvers vegna þarf að setja kröfur í útboðum/innkaupum, hlutverk umhverfismerkja og að mikilvægt sé að vera vakandi fyrir uppruna viðarins.
Umhverfiskröfur í útboð - úrvalið batnar
Stöðugt bætist í hóp umhverfisskilyrða fyrir útboð. Í ágúst hafa verið uppfærð þrjú skilyrði; ræstivörur og -þjónusta, upplýsingatæknibúnaður og vefnaðarvörur. Umhverfiskilyrðin eru flest þróuð af Evrópusambandinu og auðvelda opinberum aðilum vistvæn innkaup með því að fella umhverfisskilyrðin inn í eigin útboðsgögn.
Samgöngur og lýsing - ný skilyrði fyrir útboð
Tvö ný skilyrði hafa bæst í fríðan hóp umhverfisskilyrða fyrir útboð. Skilyrði fyrir samgöngur ná til bifreiða og akstursþjónustu (sorphirðu og almenningsvagna). Skilyrði fyrir lýsingu ná til ljósapera og ljósahönnunar og -stýringar. Skilyrðin má nálgast hér.
Ríó+20: opinber innkaup skipta máli í grænu hagkerfi
Geta ríkisstjórnir ýtt undir græna hagkerfið í gegn um opinber innkaup? Já sögðu norrænir ráðherrar á nýliðinni ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna Ríó+20. Haldinn var sérstakur viðburður á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar þar sem þessari spurningu var svarað ásamt fleirum, sjá nánar í frétt hér.