Fréttir
Nýskapandi innkaup eru lykillinn að grænu hagkerfi
Nú er komin ný síða sem helguð er nýskapandi innkaupum (e. Public procurement innovation, PPI). Slík innkaup eru kröftugur drifkraftur fyrir nýjar vistvænar lausnir og grænt hagkerfi. Nýskapandi innkaup geta skapað störf og aukið samkeppnishæfni atvinnulífsins og lítilla fyrirtækja.
Birgjar og markaðurinn græða
Danska umhverfisstofnunin hefur komist að því að vistvæn innkaup koma birgjum til góða, skapa aukin tækifæri á mörkuðum, efla nýsköpun og útflutning og skapa ný störf.
Hvernig á að innleiða vistvæn innkaup í litlum samfélögum?
Út er kominn nýr og aðgengilegur bæklingur um hvernig á að innleiða vistvæn innkaup í litlum samfélögum á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar. Hér má nálgast bæklinginn.
Kostnaður við ræstingar í HÍ minnkar
Í september 2012 voru boðnir út um 60 þúsund m2 hjá HÍ fyrir ræstiþjónustu. Á grunni vandaðrar þarfagreiningar og kröfu um Svansvottaða ræstingu fengust hagstæð tilboð og kostnaður vegna ræstinga mun minnka umtalsvert. Jafnframt mun efnanotkun minnka og öll efni sem notuð eru við almenna ræstingu eru umhverfismerkt. Plastpokar hafa ekki verið notaðir í ruslafötum á skrifstofum í Háskóla Íslands frá 2010. Allt er þetta gott fyrir pyngjuna, umhverfið og heilsuna.
Reiknivélar fyrir líftímakostnað
Ein leið til að reikna heildarkostnað vöru er að greina líftímakostnað (e. Life Cycle Costing, LCC). Líftímakostnaður er innkaupaverð vöru auk kostnaðar við rekstur, viðhald og förgun. Í þarfagreiningu eða við innkaup skiptir máli að gera sér grein fyrir heildarkostnaði. Nú eru aðgengilegar á vinn.is reiknivélar fyrir líftímakostnað.